14.1.2009 | 15:37
Skólinn í sjónmáli
Hið óendanlega langa jólafrí er alveg að taka enda, skólinn byrjar semsagt á morgun. Ég verð mjög fegin að hafa aftur eitthvað að gera þó mér sýnist á kennsluáætlunum að fljótlega fari ég að bölva því að hafa of mikið að gera.
Ég er svo spennt að hafa eitthvað að gera og geta farið að skrifa hluti niður í dagbók að ég er að fara að gera mér sér ferð út í skóla til að ná mér í dagbók. Skipulagsfríkinu í mér er búið að líða illa síðan um áramót þegar gamla dagbókin mín kláraðist og ég hætti að geta skrifað hluti skipulega niður. Þetta árið er ég samt að spá í að fara raunverulega eftir öllu þessu sem ég skrifa niður. Það væri allavegana plús.
Um bloggið
Hógvær bæði og yndisleg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skipulagsfrikid i mer lidur einmitt lika illa ef eg get ekki skrifad allt nidur i bok, en svo er annad mal hvort ad eg fari 100% eftir tvi:D
Gunnfridur (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.